Mother Fucking house of pain

I´d rather be hated for who I am,but loved for what I´m not..

24.12.2007 18:17:14 / lecter666

Gleðilega hátíð!

Gleðileg Jól og farsælt komandi ár. Þakka góðar stundir á árinu sem er að líða.  Hafið það sem allra best yfir´hátíðarnar með fjölskyldum ykkar

jólakveðja frá 14.jólasveininum Rjúpnagleypi og Elvari Má!

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 15:11:53 / lecter666

Helga Lína

 

 

 

 

Elsku frænka.

Það er mikil sorg í mínu hjarta núna,laugardagurinn var án efa sá erfiðasti dagur sem ég hef upplifað.  Ég trúi því varla ennþá að þú sért farin frá okkur. Þú varst tekinn alltof fljótt í burtu,ég var alls ekki tilbúinn að kveðja þig. Verst finnst mér þó hvað það er langt síðan ég hitti þig síðast. Alltaf gat maður talað um allt við þig,skipti engu máli hvað það var,þú hafðir áhuga á öllu sem ég tók mér fyrir hendur og reyndir gjarnan að ráðleggja mér líka. Í  hvert einasta skipti sem ég hitti þig spurðuru mig hvernig kvennamálin hjá mér væru og hafði yfirleitt sterkar skoðanir á því,sagðir mér alltaf að flýta mér ekki um of,því þú vissir að einhversstaðar væri stelpa sem gæti tekið mér eins og er,nákvæmlega eins og þú gerðir ævinlega.

Það eru margar minningar sem streyma í gegnum hugann þegar ég lít um öxl og hugsa um þig.allar góðar,þú varst frábær kona og vildir öllum vel. Mundu það að ég elska þig og á eftir að sakna þín,alltaf! Og eins og KK orðaði það svo vel : “I´ll see you again,when it´s my time to go!

Elska þig alltaf frænka og þú átt eftir að fylgja mér og vaka yfir mér það sem eftir lifir.

 

Elsku Sandra Huld,Hafsteinn Viktor,Jón Alexander,Nóni,Gunnsa,Grímur,Guðni,Stebbi og Ella, ég samhryggist ykkur innilega,megi Guð vera með ykkur á þessum erfiðu tímum!

 

Enda þetta svo á textanum við lagið When I think of angels,sem mér finnst eiga vel við

 

Kv. Elvar Már

 When I think of angels

I think of you

And your flaming red hair

and the things that you do.
 

I heard you had left

no it couldn't be true

I think of angels

I think of you. 

Godsspeed to you angel

wherever you go

although you have left

I want you to know

My heart's full of sorrow

I wont let it show

I´ll see you again

when it's my time to go.  


» 13 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 00:02:55 / lecter666

Tattoo

Védísar tattú segið þið??? gott og vel hvort ´´a ég þáað mér þessa:

 

 

ja eða þessa:

 

maður spyr sig.....


» 21 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 02:45:44 / lecter666

ja hérna hér

Halló og komið þið sæl Langt síðan ÉG hef bloggað hér! ;) 

Ég fór og fékk mér smá öl áðan svona af því tilefni af því að ég er ekki að vinna á morgun. J

  Ég er ekki að blogga af því að ég hef eitthvað mikið að segja heldur er ég bara að blogga..af því bara. 

Það er fínt að frétta hjá mér,vinn bara alveg nógu mikið á veitingahúsinu Plaza,en þið sem vitið það ekki(ef þið vitð það ekki,þá býð ég ykkur velkomin/nn úr hellinum ykkar) og  líkar það bara fínt. Ég hef ekki ennþá fundið mér varanlegan stað til að búa á og bý ég því ennþá inná Jón Sverri(fyrrverandi vinnuveitanda mínum) og konu hans. Það stóð til að ég myndi flytja aftur til Inga og Alísar í nýju íbúðina þeirra en það breyttist víst.. þannig að ef einhver veit af lítilli íbúð,give me a call! ;)

annars veit ég svo sem ekkert hvað á að segja ykkur,ég er bara að vinna og hina dagana geri ég ekkert... hljómar spennandi ekki satt? Nei ég hélt heldur ekki!  

Annars skilst mér það á blogginu hans Inga(tengill hér til vinstri) að helstu fréttir mínar eru þær að við ætlumvíst að fá okkur tattoo eftir mánaðarmót og lýst mér helvíti vel á það. Hef beðiðlengi eftir því að fá mér annað,eiginlega síðan 8. júlí 2004 (daginn eftir að ég fékk mér hitt). Ég veit svona nokkurn veginn hvað ég ætla að fá mér en ef þið hafið hugmyndir þá látið þið þær flakka í kommentum! ;) 

En ég ætla að fara horfa á Friends áður en ég fer að sofa,Kópasker á morgun held ég!  

 Þangað til næst 

Kv.Elvario De la Costa :8


» 11 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 23:45:51 / lecter666

My life.

Það er búið að gerast hellingur hjá mér

Ég nenni ekki að skrifa það hérna...

Ef þú vilt vita hvað,

 

verður þú bara að spyrja mig

ég skal sjá til hvort ég NENNI að svara

Þar til þá....?

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 04:03:32 / lecter666

Ellimerki?

Ég er þreyttur.....

en ég nenni ekki að fara að sofa....

mig langar á rúntinn....

en ég nenni ekki að keyra....

ég væri alveg til í að tékka á því hvað er í sjónvarpinu....

en ég nenni ekki að standa upp og kveikja á því....

mig langar ekki að vera í tölvu....

en ég tími ekki að slökkva á henni,því ég gæti misst af einhverju....

ég nenni ekki að vera gamall....

en ég er ekki frá því að ég sé það....


» 20 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 15:00:01 / lecter666

smá fréttir...

Jæja ég ætla að blogga eitthvað pínu lítið,bara fyrir margréti því hún fór að væla!!!!:DEn já ég er sem sagt ennþá inná eyri og er allt útlit fyrir að ég setjist hér að,eins og planiðhefur reyndar verið lengi. Þannig er nefnilega mál með vexti að ég er loksins kominn með vinnu. Ég er sem sagt farinn að vinna á veitingastað sem nefnist Plaza,þar sem ég er klárlega aðalmaðurinn í eldhúsinu!:) Er reyndar bara búinn að vinna tvo daga en þeir hafa verið mjög fínir,ekkert klúðrað neitt svakalega miklu! Fæ svo að kynnast öllu starfsfólkinu á laugardagskvöldið þar sem verður starfsmannafundur og svo smá öl og pizzur eftir hann. Ég er ennþá bílllaus og er það ekki gott,en planið er að fara að kaupa bíl vonandi á næstunni svona þar sem ég er kominn með vinnu og get þá borgað af bíl. Hef verið að spá í að fá mér Galant,þá bílinn sem Harpa Þórey og Siggi litli Hennings eiga,geggjaður bíllþar á ferð,en hann kaupi í ekkert fyrr en þau eru búin að finna annan bíl í staðinn,er svo að fara bara núna á eftir að prófa eina Hondu sem er hérna á sölu. Núna vantar mig bara húsnæði og þá er ég að verða góður. Ég er eiginlega búinn að gefa upp á bátinn íbúðina sem stóð til að ég færi í,vegna þess að kallinn sem býr þar og átti að vera farinn út er bara alls ekkert á leiðinni út neitt! Þannig ef það veit einhver um eitthvað sem ég get búið í má sá hinn sami endilega benda mér á það.Alís og Ingi eru sko að fara að flytja út og ekki ætla ég að flytja með þeim og ónáða þau meira en ég hef nú þegar gert.Annars er bara lítið að frétta af manni,ég djamma að sjálfsögðu alveg heil ósköpeins og ég hef gert í soldinn tíma,en það hlýtur að minnka eitthvað þegar ég farinn að vinna á fullu. Fór um daginn á 1929 þar sem var eitthvað Fantasy partý,þar sem einhverjar fullklæddar,já ég sagði fullklæddar stelpur hömuðust í búrum og á súlum! Einnig reyndu þær að kenna gestum og gangandi eitthvað á súluna. Ég hins vegar þurfti ekki á neinni kennslu að halda og vippaði mér á súlukvikindið,Salka kom til mín og sagðist ekki hafa vitað það fyrr en á þessari stundu að ég væri strippari,svo góður var ég! Ég gerði mér “lítið” fyrir og klifraði upp þessa blessuðu súlu og hékk þar í dágóða stund,það var meira mál en ég hélt,ég var búinn að steingleyma að ég væri svona þungur! En með ærlækjasels þrjósku komst ég nú upp í topp,og ekki var laust við að ég væri með strengi eftir þetta,sem eru í raun og veru nýfarnir! Skellti mér í gær eftir vinnu með Hörpu Þ. Og morra aðeins út á rúntinn,fórum reyndar í hafnarstrætið og sátum við þar í drykklanga stund og sötruðum öl og spjölluðum soldið,kósý stemmning bara hjá okkur. Við morri ákváðum það að ekki væri annað hægt en að kíkka á capone svona í tilefni þess að það var nú einu sinni fimmtudagur. Eftir að hafa vaðið þangað,já ég sagði vaðið! Það var sko snældu vitlaust veður úti og sjór kominn alla leið upp að dyrum,ég í rússkinsskóm sem eru ekki góðir í bleytu og var að sjálfsögðu votur í lappirnar! En við komust nú inn fyrir rest og var þá einhver enskur að ég held,trúbador að spila,rólegur soldið en mjög fær á sínu sviði,við náðum sitthvorum öllaranum þarna inni og fórum sáttir heim!Þessi helgi er svo óskrifað blað,fyrir utan þá þetta vinnu dæmi,það átti nú að vera svaka einvígi á laugardaginn en það er dottið uppfyrir vegna anna í námi hjá einhverjum,þannig að ef einhver hefur hugmyndir þá eru þær vel þegnar!Annars nenni ég ekkert að skrifa meira í bili,þetta eru allavega smá fréttir af mér og verður að duga í bili,ef það er eitthvað sem þið þurfið að vita nánar þá er síminn oftast með mér. Þangað til næst. Kv Elvario De la costa 8)

» 13 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 00:59:29 / lecter666

Ónefnd færsla

já það væri kannski ekki svo galin hugmynd að blogga,þar sem sigrún var nú farinn að reka á eftir þá verður maður kannski bara að hlýða því...

hef svo sem ekki frá neitt sérstaklega miklu að segja,hef enn ekki fengið að vita neitt hvernig fer með bílinn,en þykir mér líklegt að það mál allt fari í gang á fullu á morgun. Allavega grennslaðist fyrir um hvernig þetta stæði í dag,og komst að því að lögreglan er búinn að skila af sér skýrslu til sýslumanns og fer þetta þá líklegast á morgun í tryggingar´félögin! þvílíkt vesen sem það er að láta keyra sig!þetta tók ekki svona langan tíma þegar ég keyrði á í sumar(mætti halda að ég væri alltaf að þessu bara).

En annars var helgin fín hjá mér. Byrjaði eins og svo oft áður á upphitun á capone á fimmtudagskvöldið. Það var óvenju mikið af fólki þar svona miðað við fimmtudagskvöld,svo mikið að það var ekki laust borð í húsinu,en ég með mína frekju náði að fá þá til að fara hinu megin að redda okkur fleiri borðum og stólum. Vaknaði svo eldsnemma á föstudagsmorgun til að renna á húsavík með Hörpu,bilað útvarp og svona á leiðinni þannig að við neyddumst til að tala saman,ekki fer neinum sögum af því hvort það hafi verið gáfulega umræður eður ei...

Föstudagskvöldið byrjuðum við nokkur á að fara á plaza að éta og var ég svo heima hjá inga og alís í tjilli og sötri eftir það. þangð til við ingi hringdum í Hörpu og sannfærðum hana um að hún hefði sjálfsagt mjög gaman að því að fara á rúntinn með okkur. Tókum svo morra og óla uppí og renndum svo á endanum á vélsmiðjuna til að tjékka á von.. eins og svo oft áður var stoppið þar ekki lengi,enda þurfti ég að fara á capone eftir emergency skilaboð frá þeim stað..hmmm???:$ :)heheh en það var allt í lagi og mjög gaman fannst mér´allavega þarna á capone.

Laugardagurinn var svo frekar rólegur að vanda og þurfti smá tíma til að jafna sig eins og gerist og gengur. Stefnan var svo tekinn í sjallan þar sem gleðisveitin Buff ætlaði að halda uppi fjörinu. Byrjuðum reyndar á fyrirpartý sem er alveg nauðsyn. Sigrún sá um það þessa helgi og hittust nokkrir vel valdir einstaklingar þar í rólegri og þægilegri samkomu(oj hljómar eins og geggja lame partý), en maður náði þó að hita sig aðeins upp með öl og smá gítarspili. fínt partý þar á ferð,þó svo stofan hafi tæmst þegar Morri kom! ;) hehehe En já við renndum okkur svo í sjallan og ég var sko ekki fyrir vonbrigðum þar.ég hef beðið lengi eftir að fá að fara á ball með Buff og þeir brugðust sko ekki,þessir menn kunna öll lög í heiminum.,held ég hiki ekki við að fara aftur þegar þeir koma!

en já þessi´fína helgi endaði svo á því að ég,sigrún,ingi,alís,otti og edda skelltum okkur á hina stórfurðulegu mynd The number 23. fín mynd þarna á ferð mjög spes og alls ekki svona ekta hoillywood mynd. mér fannst líka Jim Carrey virka fínt svona alvarlegur....

en já nenni ekki meira núna

þangað til næst

kv.ELvario de la costa8)


» 15 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 23:38:51 / lecter666

R.I.P

Jæja elsku kallinn minn,nú er þinni vist hér  mjög líklega lokið. Ég á eftir að sakna þín svaklega mikið. Ég man hvað ég var ánægður þegar ég fékk þig fyrst 2.júlí 2005. Það fyrsta sem við gerðum saman var að bruna eins hratt og við mögulega gátum fram í sveit með tónlistina í botni,og efast ég um að hvorugur hafi orðið fyrir vonbrigðum. Krafturinn var gífurlegur og virtistu óþreytandi! Þennann sama hlut áttum við eftir að gera margoft saman og skemmta okkur alltaf nákvæmlega mikið.´Já ég á eftir að sakna þín mikið! Minn elsku legi Subaru Legacy! Við stóðum saman í gegnum súrt og ´sætt,spyrnurnar sem við unnum allar og líka þegar ég klessti þig,ekki leið á löngu þar til þú reist upp frá dauðum og snérir til mín aftur. Ég á alltaf eftir að muna eftir síðustu spyrnunni þar sem þú sýndir yngra módeli að reynslan skiptir miklu máli þegar kemur að kappakstri og rústaðir honum! En svo kom að því. Föstudagurinn 16 febrúar átti eftir að reynast þinn síðasti dagur. Við vorum eins og svo oft áður á rúntinum þegar allt í einu upp úr þurru dró ský fyrir sólu,þegar Hyundai sonata,dökk að lit beygði í veg fyrir þig. Enginn tími gafst til að bjarga því og urðu afleiðingarnar svona:

og þetta er svo bílinn sem var þinn bani:

 

já þetta var skemmtilegur tími sem við áttum saman. Hvíldu í friði!!!!

þangað til næst

kv.Elvario De la Bílllaus:(:(:(:(:(


» 19 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 23:30:28 / lecter666

Blót

Já blogg segiði? get svo sem sagt eitthvað frá síðustu helgi.

Hún reyndar byrjaði snemma eins og stundum vill gerast. 'a fimmtudaginn fórum við Ingi að sjá Sly Stallone í sínu besta formi í Rocky myndinni og vorum bara býsna sáttir við gamla brýnið í þeirri mynd. nú svo eftir það var rennt til Morra og opnaður öl,sátum þar í smá tíma og renndum svo niður á capone. þar var nú enginn gífurleg stemmning og fámennt frekar,en samt fínt að sitja og spjalla yfir ölkrús,settumst á borð með einhverjum stelpum og spjölluðum eitthvað við þær,stelpan sem sat við hliðina á mér deildi áhuga mínum á tónlist og gátum við því spjallað um ýmislegt,ingimundur stóð fastur á því að ég væri fullur og kominn á trúnó við hana,sem var ekki satt allavega ekki þetta með að vera á trúnó! Við komum svo heim einhverntímann eftir lokun á capone og fengum okkur aðeins meiri bjór og ákváðum svo að segja þetta gott í bili. Ingi henti sér svo í klippingu daginn eftir um hádegi og kom svo og náði ´´i mig því að enginn annar en hinn eini sanni Jói Harðar var lentur á akureyri og ætlaði hann sér að koma með okkur á blót á skerinu. við brösuðum svo í bænum í smá tíma,þurftum að sjálfsögðu að fara í mjólkurbúðina!;) Svo var bara hent sér af stað á skerið. komum við og tókum Óla alzheimerz með okkur. ástæðan fyrir þessu nafni á óla jón er sú að þegar við vorum nýkomnir á tjörnesið þá áttaði hann sig á því að hann hafði skilið jakkafötin sín eftir á laugum!! maður gleymir ekki jakkafötum þegar maður er á leið á þorrablót! við þurftum að stoppa þarna á nesinu þar sem símasamband er af skornum skammti á meðan hann hringdi nokkur símtöl til að redda þessu,sem honum tókst nú á endanum(þessi saga væri ekki eins fyndin nema fyrir það að´þegar hann var að fara til ömmu sinnar á laugardagskvöldinu fyrir blót til að taka sig til og svona þá gleymdi hann .eim aftur á efri hólum!!!!)  þannig að ég vil meina að alzheimers sé nafnið á honum núna. nú þegar við komum á kópasker var að sjálfsögðu teki ðvel á móti okkur og héldum við okkur heim svona rétt til að byrja með. en bara rétt til að byrja með, röltum yfir í akurgerði 3 til Millu og fengum okkur öl þar, og að sjálfsögðu eitthvað að borða eins og er siður þegar maður fer yfir til millu! Svo færðist drykkjan yfir í brún þar sem var býsna mikið drukki ðog hlegið og margar sögur og pælingar sem litu dagsins ljós þar á bæ. enduðum aðeins drukknir þar og gerði Ingi heiðarlega tilraun til að eyðileggja allt í herberginu mínu þegar við vorum komnir heim

laugardagurinn var líka bara fínn. ég og jói vöknuðum um 13,ingi vaknaði ekki klukkann 13 heldur einhverntímann töluvert á eftir okkur. Svo var haldið á ruslahaugana með byssu að vopni og 250 skot og 250 leirdúfur sem áttu að deyja! Bara svo lesendur síðunnar ruglist ekki þa´eru leirdúfur ekki úr gleri!!! (bara fyrir Inga ;)) ég vil nú ekki segja mikið um árangur okkar á skotsvæðinu en við skutum allaveg 175 skotum og höfðum við mikið gaman af! sérstaklega ingi sem hafði aldrei skotið áður,en byrjendheppnin var soldið í gangi hjá honum.

 Nú svo var að sjálfsögðu komið að aðalatriði helgarinnar sjálft blótið! Við græuðum okkur allir 3 einn tveir og bingó maradonna. settumst svo í sólstofuna með gítara og bjór og byrjuðum að hafa gaman mikið gaman! sátum þar í dágóða stund og sungum mikið,sá einhverja sem voru að labba út á götu og stoppuðu og snéru sér við til að athuga hvaðan þessi himneski söngur kæmi! ;)Röltum svo niður í íþróttahúsið. Skemmtiatriðin þetta árið voru mjög góð,innslagið frá otta var SNIILD og Höddi og Einsi voru FRÁBÆRIR! ballið var líka mjög gott að mestu leyti,en þar ekkei laust við að ég hafi verið leiðinlega fullur! ég man ekki eftir því að hafa verið svona fullur,en svo ef útí það er farið þá man ég ekkert alltof mikið frá þessu kvöldi en það kemur ekki að sök.þetta var samt skemmtilegt. ég fór nú þrátt fyrir gífurlega ölvun í eftirpartýið þar sem ég var bara ekkert minna fullur og man EKKERT eftir því,man þegar ég sótti gítarinn minn,man ekkert eftir því að hafa spilað á hann.Gerði ég það eitthvað?einhver?

en já sunnudagur fór svo bara í upprifjun gífurlega þynnku og akstur á ak.

leiðinlegur pistill ég veit,en mér er sama!

þangað til næst

kv. Elvario De la Costa!


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.02.2007 15:43:27 / lecter666

Saga.

Staðurinn er nefndur Sjallinn. Það er föstudagskvöld og svolítið kalt. Fjórir félagar sitja saman í bíl og stefna á fyrrnefndann Sjalla. Ástæðan er einföld,tónleikar með konungnum sjálfum, Bubba Morthens. Það er dauf lýsing í salnum og félagarnir finna sér borð í miðjum salnum. Sviðið er lýst upp með nokkrum kösturum,bláum rauðum og hvítum, á sviðinu eru 2 hátalarar sem beinast að stól að miðju sviðinu,fyrir framan stólinn er nótnastatíf og míkrafónsstandur,við hliðina á stólnum er hátt borð sem seinna stóð undir vatnskönnu og glasi. Stemmningin ´´i salnum er góð og þægileg á meðan er beðið eftir því að hann stígi á sviðið. Og svo gerist það,fagnaðarlæti brjótast út í salnum þegar hann gengur inn,hávaxinn,þrekinn hann er íklæddur galla buxum, hvítri skyrtu með efstu 2 tölunum fráhnepptum og dökkum jakka yfir skyrtunni. Hann heldur á fallegum ljósum 6strengja gítar í hendinni og brosir þegar hann horfir yfir salinn. Hann sest niður í stólinn og tengir gítarinn og fer einu sinni yfir það hvort að gítarinn sé ekki rétt stilltur. Svo byrja töfrarnir!

já ég sem sagt fór á tónleika í gær með Morra,Gústa og Ottó. þetta var  vægast sagt SNILLD!!! geggjaðir tónleikar og ég hika ekki við að fara aftur næst þegar hann kemur þó ég þurfi að borga helmingi meira fyrir miðann!

kemur meira seinna

þangað til næst

kv.Elario de la Costa 8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 22:39:50 / lecter666

bla bla

Jæja kannski kominn tími á lítið blogg..

 

 



Ekki get ég sagt að ég hafi mikið að segja,frekar en venjulega kannski..Er sem sagt á kópaskeri að gera ekki neitt!Og það er sko ekkert gaman! Bara nákvæmlega ekki neitt!

Helgin búin að vera frekar róleg,eins reyndar allir dagar ef útí það er farið. Ruslið kemur reyndar alltaf á föstudögum og er það eina fasta vinnan sem ég hef þessa dagana,svakalegt fjör..

 

 



Reyndar gerði ég soldið skemmtilegt á laugardaginn. Ég, Milla og Lísa skelltum okkur í skúlagarð á leiksýningu sem krakkarnir í Lundi voru að sýna. Ég var mjög spenntur að fá að sjá þetta því að þetta er leikritið Gauragangur,og er bókin ein af mínum uppáhaldsbókum, held ég sé búinn að lesa hana allavega 5 sinnum (ekki vera svona hissa!ég les stundum!). En þetta var sem sagt bara alveg þrusugóð sýning hjá krökkunum og ég skemmti mér alveg konunglega, Friðbjörn Bragi stóð sig einstaklega vel í aðalhlutverkinu eins og allir aðrir reyndar. Andri frændi fannst mér líka býsna góður,en eitthvað þurfti hann nú lítið að hafa fyrir því að leika,þar sem hann lék gamlann kall og er hann nú svolítið gamall í anda! ;) en já sem sagt mjög góð sýning í alla staði og sé ég ekkert eftir því að hafa farið á hana!

 Allan tímann sem ég sat þarna og horfði á þau leika var alltaf að rifjast upp fyrir mér þeir tímar sem ég var í lundi og leika í leikriti,þá sérstaklega Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir. Þegar ég hugsaði til baka á þann tíma sem við vorum að brasa í því öllu ævintýri sem það var,því Kisi var nú ekkert smá leikrit. Á þeeim tíma sem við vorum að gera þetta allt, var maður nú alveg kominn með nóg af þessu rugli öllu,hundleiður á þessum lögum sem voru í leikritinu og ekkert í leikritinu fyndið lengur (nema þá að sjálfsögðu hlutverkið sem Morri lék!) þá svona þegar maður hugsar til baka var þetta ótrúlega skemmtilegur tími, það var þarna sem við uppgötvuðum að Einar Melax var í rauninni snillingur,það var þarna sem ég byrjaði að syngja,það var þarna sem maður losnaði við mestu feimnina. Byggt á minni reynslu þá held ég að það ættu allir að prófa að leika í svona leikriti,það er kannski ekki alltaf gaman þegar á því stendur en það er gaman að hugsa til baka,því í minningunni virkar þetta allt svo skemmtilegt!

 

 



Jæja þetta var kannski ekkert skemmtilegur pistil,en mér er bara alveg sama

 

 



Þangað til næst

 

 



Kv.Elvario De La atvinnulaus!


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 15:10:42 / lecter666

annáll 2006

Janúar: lítið held ég að hafi gerst í þessum mánuði,þorrablót á kópaskeri sem var mjög skemmtilegt. Byrjaði aftur að vinna hjá Norðlenskum Aðalverktökum eftir smá pásu og fluttist þá á Kjöl í aðaldal,ekkert sérstaklega gaman. Aðaldalur er klárlega ekki málið og ekki öskrandi tvíburar heldur!! MAMMI!!!!! ÆJƨ!

Febrúar: Var á Kili að vinna við þessar húsasmíðar,varð ekkert skemmtilegra að vera þarna! Djammaði alveg örugglega eitthvað í þessum mánuði,fór svo til þýskalands í heimsókn til Hrafnhildar,var í samfloti með Thomasi til að byrja mðe,keyðri með honum suður og flaug með honum til Danmerkur,þar hlupum við Strikið svona til að geta sagt fólki að við höfðum farið þangað og tókum svo lest til þýskalands(Jább það er hægt,lestin fer meira segja upp í ferju á leiðinni). Vegna skorts á kunnáttu minni í þýsku tungumáli samdi Thomas við einhver kall í lestinni um að koma mér í rétta lest þar sem ég þurfti að skipta um lest til að komast á áfangastað! Þökk sé þessum manni komst ég alla leið áfallalaust

 Mars: Var í þýskalandi ennþá þegar þessi mánuður byrjaði, einkenndist þessi ferð mín af býsna mikilli bjórdrykkju og ef ég á að vera hreinskilinn gífurlegum leiðindum. Fór svo heim,þó með stoppi í London þar sem ég notfærði mér þekkingu mina þar á bæ og skellti mér í miðbæinn og lék mér eitthvað í þessa klukkutíma sem ég átti þar. Fékk síðan far í aðaldalinn með Sigga litla og Hadda hárlausa (vinnufélgar mínir hjá N.Av) og við tók þessi blessaða vinna! Í mars áttu líka þeir bræður Ómar og Ottó afmæli 20 og 25 ára og var að því tilefni haldið GEGGJAÐ skemmtilegt grímubúningapartý. Virkilega gaman að sjá hvað fólk lagði á sig við að vera í sem flottasta búningnum,bæði andlega og fjárhagslega! Einkenndist þetta party af gífurlegri drykkju og stórgóðri skemmtun frá t.d Huldu konu Baldurs sem setti líklega met í því að detta í stiganum sem er svo skemmtilegur þarna á spítalaveginum. Kvöldið endaði svo á Oddvitanum(Rocco eða 1929 eða hvað í fjáranum þetta hét þá!) og svo hópslagsmálum á eftir! Ég var samt ekkert með í þeim! Ýmislegt leiðinlegt líka í þessum mánuði sem verður ekki farið út í hér!

Apríl: Ég vil frekar vera hataður fyrir það sem ég er,heldur en að vera elskaður fyrir eitthvað sem ég er ekki! Þetta sagði Kurt Cobain en í þessum mánuði 2006 voru 12 ár liðin frá dauða hans. Þessi mánuður er einnig merkilegur fyrir þær sakir að hér á aðalfólkið afmæli, Gústi og Védís. Kristín Ósk líka og svo að sjálfsögðu ÉG!!!!!!! Páskarnir voru haldnir hátíðlegir þennan mánuð og fór ég á tvö boll með Legó eitt í skúlagarði hitt á Þórshöfn bæði býsna skemmtileg. Eins og áður kom fram hélt ég uppá afmælið mitt í þessum mánuði með nokkrum vel völdum félögum og bróður! Bróðir minn setti harða atlögu að meti Huldu í að detta í stiganum á spítalaveginum! ;) Mikið drukkið það kvöld eins og önnur reyndar í þessum mánuði og endaði ég djammið á að æla fram af svölunum í Hafnarstrætinu. Daginn eftir var svo fermingarveisla hjá Ívari Helga og hefði ég matt vera í betra ástandi í þeirri veislu en raun bar vitni!

Maí: byrjaði þennan mánuð á lífshættulegri vinni við að afferma áburðarskip þar sem kranamaðurinn í skipinu gerði heiðarlega tilraun til að drepa mig! Þetta var það merkilegasta í þessum mánuði held ég. Flutti reyndar til akureyrar til að reisa húsið sem við vorum búnir að vera að smíða!

Júní: Skemmtilegur mánuður svona mestmegnis allavega. Ýdalaballið var þarna og var eftir því sem ég best man alveg djöfull gott bara.Daginn eftir það var ég fenginn til að spila í 50 ára afmæli hjá Gunna Sig (á Röndinni) Bíladagar á akureyri sem voru geggjaðir,Jói og félagar komu að sunnann og það var mikið djammað þessa helgi og farið í einhverjar spyrnur minnir mig líka! Fór í bíó í fyrsta skiptið í ár… Einhver asni skaut stein í rúðuna á bílnum mínu og skemmdi hana, og í sömu ferð var ég í fyrsta skipti tekinn fyrir ofhraðann akstur. Mældur á 119 km/h á leið niður hólskrókinn í kelduhverfi.það var þrusugaman eða ekki bara. Man ekki meira úr þessum mánuði!

Júlí: Þarna í þessum mánuði gerðist ýmislegt mis-gott, ég flutti aftur á kópasker og hætti þar með störfum hjá Norðlenskum Aðalverktökum! Og byrjaði að vinna hjá pabba við ýmislegt s.s rusl,sláttur,málningar vinna,og gröfuvinna svo eitthvað sé nefnt. Ég, Ingimundur frá Katastöðum,Alís kona hans.Óli Jón,Ómar Gústi og Védís skelltum okkur á austurlandið í útilegu í hallormsstaðaskóg, Ég,ingi og alís fórum á undan öllum hinum og tókum smá túrista á þetta bara,Þessi helgi var algjör snilld og þarf að endurtaka einhverntímann aftur! Sjálfsagt það leiðinlegasta í þessum mánuði var þegar ég klessti bílinn minn af einhverjum aulaskap.Tjónið var dýrt og var ég bílllaus í soldinn tíma á eftir,en þökkum guði fyrir kaskó!!!;)

Ágúst:Ennþá í vinnu hjá pabba og likaði bara vel. Verslunarmannahelgin í þessum mánuði Sigurrósar tónleikar í Ásbrygi og síðan Akureyri það sem eftir var af helginni! Fín helgi.Man ekki meira úr þessum mánuði…..

September: Hætti hjá pabba og fór í fjallalamb til að prófa að vinna í sláturtíð(þá meina ég heila sláturtíð!) Líkaði býsna vel bara. Það voru party á gistiheimilinu hverja einustu helgi og mætti ég held ég í öll,reyndar af því að ég var beðinn um það því að ég kann að spila á gítar! Það vissi allir útlendingar í þessari sláturtíð hvað ég hét vegan þess að ég var gaurinn með gítarinn! Þessi mánuður einkenndist sem sagt af dauðum rollum og fullum svíum!

 Október:var enn í fjallalambi og ákveðið var að ég fengi vinnu þar fram á áramót. Var á skotvopna námskeiði á húsavík og varð loksins löglegur veiðimaður og keypti mér mina fyrstu byssu!Sláturtíðin kláraðist þennan mánuðinn og var því að sjálfsögðu slútt,Hrafnhildur kom til mín þá helgi og var sú helgi alveg svakalega skemmtileg! Fór að mig minnir eitthvað á ak þennan mánuð til þess að hitta hana já og að sjálfsögðu að djamma! Kristín Ósk eignaðist strák,Ingvar Örn

Nóvember: lítið um að vera í þessum mánuði,fór allaveg einu sinni á akureyri á djammið. Fór einnig í fyrsta skiptið einn á rjúpnaveiðar! Sá ekki fugl í þeirri ferð

Desember: fór suður 1.des á rockstar tónleika í höllinni með hrafnhildi,fór í heimsókn til Ernu og strákanna á akranesi,fór í bachelor íbúðina hans Eyjólfs,drakk eitthvað töluvert af bjór líka í þessari ferð. Skírn hjá Ingvari Erni á skinnastað og veisla á eftir,fór um kvöldi ðá húsavík til að djamma með Sigga litla,hann tábrotnaði með eftir minnilegum hætti það kvöld. Að sjálfsögðu voru jólin þarna líka,jólaglögg á daðastöðum 22.des. chill heima bara yfir jólin. Ball í skúlagarði föstudaginn 29.des með legó og svo haldið inná ak á laugardeginum til að halda upp á áramótin sem voru skemmtilegustu áramót á minni lífssleið.

Þarna er það komið bara held ég,er alveg örugglega að gleyma HELLING sem gerðist,ef þið munið eftir einhverju þá látið mig bara vita. Læt þetta gott heita í bili

Þangað til næst

Kv.Elvar Már 8)


» 13 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 22:32:22 / lecter666

Guð minn almáttugur!!!

Gleðilegt árið öllsömul og takk fyrir það gamla!

það voru komnar yfir 120 gestir á síðuna,bara í dag???????  hvur fjárinn er í gangi??? ég hef ekki skrifað hér inn pistil í í háa herrans tíð og það er ennþá verið að skoða á fullu? ég man ekki eftir svona miklum heimsóknafjölda á þessari síðu síðan í október í fyrra. þá voru reyndar helmingi fleiri en jæja.

annars er bara fínt að frétta af mér. jólin búin að vera fín og áramótiun enn betri,ákvað í ár að prófa eitthvað nýtt og vera á akureyri yfir áramót þar sem ég alltaf verið á kópaskeri yfir áramót.. og ekki er hægt að segja að ég hafi orðið fyrir vonbrigðum. nema þá með helvítis flugelda prumpið sem ég keytpti fyrir 4800 krónur!!!! smá gítarstemmari á spítalaveginum sem var mjög gaman! Palli í sjallanum og gjörsamlega troðið,svo troðið að ég dansaði ekki bara á dansgólfinu,heldur sviðinu,einum stól og borði líka!!!! Þetta var snilld í alla staði! og þakka ég öllum sem áttu í hlut fyrir frábæra helgi! ´

nenni ekki að skrifa meira í bili,er að gera það upp við mig hvort ég eigi að gera áramóta an´nál. kemur bara í ljós!

þangað til næst

Kv. Elvar Már 8)


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 18:04:31 / lecter666

ÁTJÁN!

Það hafa komið 18 manns inn á síðuna mína í dag!! Eða svo segir teljarinn!! Eru virkilega svona margir sem koma á hverjum degi bara til að athuga það hvort ég sé búinn að blogga???? :o

          .........og svo skrifa ég aldrei neitt..... :S

Ætti ég kannski að fara að taka mig á???.... :$

» 24 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7